Til að vernda þá aðila sem sendu mér svar við bréfi mínu mun ég ekki birta nöfn þeirra undir bréfunum. Hér eru nokkrir þeirra:
1)
...Þetta er flott hjá þér. Þú gerðir þetta rétt - allt til að dæma innihald bréfsins sem þörf er á kemur í því fram og sett fram á hreinskilinn hátt.
Ég er ánægður með þig, ekki hefði mér dottið slíkt í hug, hvað þá framkvæmt - samt er ég gríðarlegt netnörd. Því síður hefur mér einhverntímann dottið í hug að svara slíkum fjöldapósti.
Þannig er nefninlega mál með vexti að foreldrar mínir hafa verið hjá VÍS í nokkuð langan tíma og raunasagan er jafn löng.
Það mætti kannski segja að þú hafir gengið í gegnum nokkurnveginn það sama og þau hafa gengið í gegnum - bara á styttri tíma...
2)
Ég tek þessa sögu þína trúanlega og ætla ekkert að sannreyna hana, ég er ekki viss um að ég muni sérstaklega eftir þessum eldasvoða. Hinsvegar var ég að keyra út á Keflavíkurflugvöll og mætti sjúkrabíl þegar maður lést í eldsvoða að ég held ég Garðinum. Þessir atburðir eru skelfilegir og hafa áhrif á alla.
Ég skil viðbrögð þín og mér finnst að þessi frásögn þín megi gjarnan birtast, t.d. í einhverju dagblaði og þess vegna hef ég leiðrétt textann svo hann sé vel birtingarhæfur á prenti.
Vandamálið held ég að sé ekki sérstaklega eitt tryggingarfyrirtæki fremur en annað heldur fremur breytt þjóðfélag breytt pólitík þar sem allt byggir á hagnaði og gróða.
Tryggingarfyrirtækin eru ekki hluti af samhjálp þau eru hluthafa fyrirtæki þar sem hagnaðurinn er aðalatriði.
Þau hafa svo sem lengi verið því marki brennd að vera gróðafyrirtæki og mismuna viðskiptavinum sínum. Upphaflega hugsunin er að fólk safni fjármunum saman svo áföllin verði viðráðanleg þeim sem fyrir þeim verða og hinir sleppi með skrekkinn.
En núna er þessi meginhugsun að meira eða minna leyti horfin í gróðahugsjónina eins og víða annars staðar eða mér liggur við að segja alls staðar.
Og það er gott að fólk - við öll stöldrum við og hugsum: Er þetta það sem við viljum, hvað er það sem skiptir mestu máli, hvers konar þjóðfélag viljum við.
Með bestu kveðju einn af móttakendum sögu þinnar...
3)
Hæ Steinar,
Ég þakka þér fyrir að miðla okkur af reynslu þinni sem er skelfileg um leið og ég samhryggist þér en það góða við þetta var, að það sem er dýrmætara en gull, börnin og konan og þú björguðust heilu og húfi.
Þetta er verðugt umhugsunarefni hvernig bregðast á við þegar svona óviðráðanlegt óhapp hendir mann.
Ég get sagt þér sögu af viðskiptum mínum við VÍS. Ég tryggði bílinn minn í mörg ár hjá þeim og lenti aldrei í neinu tjóni og borgaði alltaf alla upphæð á gjalddaga ár hvert. Maður hefði haldið að þarna væri góður kúnni á ferð. Ég borgaði alltaf 1. okt. ár hvert og nú datt mér í hug að biðja þá að breyta gjalddaganum í 1. des. í staðinn . Ég hringdi og bað um breyttan gjalddaga og ég ætlaði að borga á milli nóvembermánuð en mér var svarað kuldalega og sagt að það væri ekki hægt.
Ég sagði strax upp mínum tryggingum hjá þeim . Það var ekki fyrr en ég var búin að segja upp að starfsmaður hringir í mig heim og biður mig endilega að endurskoða afstöðu mína. Ég sagði honum að þeir hefðu verið ókurteysir og ekki viljað gera neitt fyrir mig án þess að skoða fyrst að það voru þeir sem græddu á mér.
Ég er guðsfegin að vera komin úr þessu tryggingafélagi. og ég óska þér og þínum til hamingju að vera á leiðinni út eða komin frá þeim. Þeir gera ekkert fyrir okkur . Þökk sé Drottni fyrir þá verndarhendi sem hann hélt um ykkur.! Ég óska ykkurgæfu og gengis í framtíðinni og býð ykkur Gleðilegra jóla. Kveðja ...
4)
Sæll Steinar Já þessi saga snertir svo sannarlega við manni. Þettaer hræðilegt sem fólkið hefur þurft að ganga í gegnum.Eftir lestur þessa bréfs þá ætla ég að fara að kaupamér slökkvitæki, er bara með reykskynjara á heimilinumínu. Eins finnst mér þetta svakalegt meðtryggingafélagið og kem þessu áleiðis.....
5)
Sæll Steinar ég skil vel þína afstöðu til Vís. fyrir mörgum árum kviknaði í eldhúsinu hjá mér ég gat sjálf hlaupið út með brauðristina. Það logaði í smjörlíkisbréfi sem hafði feststvið brauðið . ég bauðst til að mála eldhúsið sjálf og það kom maður og kannaði skemmdir. Því miður bauðst ég sjálf til að laga, en tryggingarfélagið nýtti sér það og borgaði bara málninguna. Gluggatjöldin í stofunni þurftu í hreinsun, ég varð aðborga það. svona eru tryggingarfélög. mín reynsla er mjög slæm af tryggingarfélögum bæði í sambandi við bíla og annað. Athugaðu lögfræðiálit. Í Guðs bænum reyndu aðjafna þig á þessu öllu. Reynið að fara í ferðalag út að dansa Hlusta á tónlist og umfram allt elskið hvort annað. Gleðiríka framtíð og blessunaróskir. (Ein bráðum áttatíu ára. )
6)
Sæll Steinar, takk fyrir að deila þessu með mér, ég varð ekki fyrir ónæði af þessarifrásögn þinni, heldur hefur hún valdið mér heilabrotum um hvað maður er varnarlaus. Ég skil reiði þína, ég hefði örugglega orðið það líka. Að lokum óska ég þér ogfjölskyldu þinni Gleðilegra jóla. kveðja ...
7)
Sæll Steinar.Þetta er mjög áhugaverð saga og bara gott mál að fá hana senda.Vekur mann til umhugsunar. Gangi ykkur sem allra best með þessi mál. Kveðja,...
8)
Þetta er ekki falleg saga um Vís. Ég vinn hjá stóru fyrir tæki og mun áframsendaþennan póst á póstlistann hjá okkur. Gangi þér vel og vonandi sér tryggingafélagiðað sér. Ég sjálf tryggi hjá Sjóvá og hafa þeir bætt mér vel öll tjón sem ég heflent í. Gott er að fá tilboð frá sem flestum tryggingarfélögum. Enn og aftur gangi ykkur vel og gleðileg jól.
...
9)
Þakka þér fyrir bréfið. Ég hef þegar forðað mér frá VÍS eftir að hafa átt íbaráttu um langan tíma með að fá tryggingabætur eftir slys. Eftir slysið hefég þurft að ganga í gegnum margar aðgerðir á baki og hef verið frá frávinnu af þeim sökum sl. 2. ár. En samt kostaði það heilmikla baráttu aðleyta réttar sins. Takk fyrir góðar ábendingar hvað varðar brunavarnir.
...
10)
Sæll, takk kærlega fyrir að segja þína sögu. Alltaf gott að heyra að svona sögur hafieinnig farsælan endi.. þá meina ég að þú og fjölskyldan þín komust lífs af. En ég tryggi ekki hjá VÍS og mun sennilega aldrei gera það.
11)
Sæll Steinar, ég er ein af þeim sem þu sendir söguna þína, þakka þér fyrir að vekjaathygli á þessu og ég mun koma henni áleiðis. Mér finnst hún fróðleg, en velti fyrirmér: eru hin tryggingafélögin betri, getum við eitthvað frekar treyst þeim. Tek þaðfram að ég tryggi ekki hjá VÍS! Gangi ykkur vel og gleðileg jól
12)
Takk fyrir magnaða lífsreynslusögu.
...
13)
Sæll Steinar. Þetta er svakaleg saga. Takk fyrir að deila henni. Vona það verði til að breyta fjármálahlið dæmisins þó ég sé ekki í stöðu til að hafa áhrif þar á. Leyfði mér reyndar að áframsenda þetta á einn sem ég þekki og er tryggingamatsmaður hjá Sjóvá. Gangi ykkur vel. Með bestu kveðju, ...
14)
Þetta er skelfileg sorgarsaga, þið eigið alla mína samúð. 'Eg verð að segjaað ég hef ekki neina áætlun ef það skildi kvikna í hjá mér, en eftir þettabréf mun ég gera það. 'Eg þakka þér fyrir ábendinguna. Mikið svakalega getaþessi tryggingarfélög verið ómerkileg.Bestu jólakveðjur...
15)
Sæll Steinar þar sem ég var í þinum sporum fyrir rúmum 7árum finnst mér ég verða að senda þér línu, ég slapp að vísu sjálf út með tvær dætur mina sjálf þær vour 1ár og 2ára en það skemmdist alveg húsið en ég var svo heppinn að vera tryggð hjá TM og þeir eru alveg frábærir ég fékk allt bætt og gat keypt mér annað hús fyrir bæturnar sem ég fékk. Þannig að ég get alveg svikalaust mælt með þeim.
Með bestu kveðjum og von um að allt gangi sem best hjá ykkur...
16)
Vildi bara senda stutt þakkarbréf og láta vita að sagan ykkar er komin til Kaupmannahafnar. Við erum lítil fjölskylda og búum í litlu fjölbýli, eins og ég vil kalla það "litlum pappakassa". Höfum lengi talað um að núna verðum við að fara ganga frá öllu í samb. við öryggi á heimilinu ef til bruna kemur. Þetta bréf varð alvarlega til þess að í dag förum við og fjárfestum í öllu sem þarf. Sjáiði hvað maður er einfaldur eitthvað, maður þarf virkilega spark í rassin til að eitthvað sé gert.
Kærar kveðjur og með von um góð jól og bjarta framtíð.
hilsen...
A.T.H.
Það sem þú lest hér að ofan er aðeins lítill hluti þeirra svara sem ég hef fengið við bréfi mínu en öll hafa þau verið í þessa áttina, ég þakka ykkur öllum sem hafa svarað mér þvi það er milkill styrkur í að heyra frá ykkur.