Undanfarna mánuði hef ég mátt berjast við Vátryggingafélag Íslands vegna tjóns sem fjölskyldan mín varð fyrir í júlí síðastliðinn, þegar eldur varð laus í íbúðinni fyrir neðan okkur og skemmdir urðu á okkar íbúð vegna sóts og reyks auk þess sem þessa nótt ég, konan og börnin mín vorum í bráðri lífshættu vegna innilokunar í reykjarkófi, þar sem þeir eru ekki tilbúnir að borga það sem þeim að mínu mati ber að borga.
Vátryggingafélagið gerir lítið úr þessu atviki en mér er allt annað en hlátur í huga og finnst mér helst mega líkja vinnubrögðum þeirra við vinnubrögð Hitlers og nasista í seinni heimstyrjöldinni eða einræðis tilburði Saddams Hussein.
Ekki alls fyrir löngu sendi ég bréf á einhver nokkur þúsund netföng og urðu viðbrögðin við þvi hreint ótrúleg, og í flestum tilfellum mér hvatning í að leggja til þessa risa með þau vopn sem ég kann að búa yfir.
Mér er spurn hvort þessi mafía sem stjórnar VÍS geri sér fyllilega grein fyrir þvi að þeir eru að fást við líf fólks eða er þeim kannski bara sama eins og þeim kumpánum Hitler, Saddam og jafnvel Osama Bin Laden.
Það þarf sterkar hreðjar til að glíma við djöfulinn og í dag finnst mér eins og Vátryggingafélagið VÍS sé beint handbendli hans.
Þeir aðilar sem ég hef þurft að kljást við þarna eru flestir vondir menn, illvirkjar og lýðskrumarar sem hika ekki við að beita andlegu ofbeldi til að ná sínu fram og arga síðan úlfur úlfur þegar maður missir þolinmæðina.
Friday, January 5, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment