Wednesday, January 17, 2007

Iphone

I have been looking at the new product from apple the iPhone and I think that you are about to see a new technology that is years ahead of the competition, it´s more than just a phone, it everything you will ever need besides your clothing and food.

The iPhone combines three products — a revolutionary mobile phone, a widescreen iPod with touch controls, and a breakthrough Internet communications device with desktop-class email, web browsing, maps, and searching — into one small and lightweight handheld device.

There is a website I stumbled on called AppleCellPhone.us


There you can read more about this iPhone and it´s tecnology, there you can also download itunes, music, movies, tv series and more. I saw that it is possible to get the Desperate Housewives series there, the Pirates of the Caribbean, punke´d, studio 60 on the sunset strip and much more, x games, itunes latino, gift certificates and so on and on.


You cantake a look at this site AppleCellPhone.us

Friday, January 5, 2007

Bréf frá fólki sem hefur svarað mér

Til að vernda þá aðila sem sendu mér svar við bréfi mínu mun ég ekki birta nöfn þeirra undir bréfunum. Hér eru nokkrir þeirra:

1)

...Þetta er flott hjá þér. Þú gerðir þetta rétt - allt til að dæma innihald bréfsins sem þörf er á kemur í því fram og sett fram á hreinskilinn hátt.

Ég er ánægður með þig, ekki hefði mér dottið slíkt í hug, hvað þá framkvæmt - samt er ég gríðarlegt netnörd. Því síður hefur mér einhverntímann dottið í hug að svara slíkum fjöldapósti.

Þannig er nefninlega mál með vexti að foreldrar mínir hafa verið hjá VÍS í nokkuð langan tíma og raunasagan er jafn löng.

Það mætti kannski segja að þú hafir gengið í gegnum nokkurnveginn það sama og þau hafa gengið í gegnum - bara á styttri tíma...

2)

Ég tek þessa sögu þína trúanlega og ætla ekkert að sannreyna hana, ég er ekki viss um að ég muni sérstaklega eftir þessum eldasvoða. Hinsvegar var ég að keyra út á Keflavíkurflugvöll og mætti sjúkrabíl þegar maður lést í eldsvoða að ég held ég Garðinum. Þessir atburðir eru skelfilegir og hafa áhrif á alla.

Ég skil viðbrögð þín og mér finnst að þessi frásögn þín megi gjarnan birtast, t.d. í einhverju dagblaði og þess vegna hef ég leiðrétt textann svo hann sé vel birtingarhæfur á prenti.

Vandamálið held ég að sé ekki sérstaklega eitt tryggingarfyrirtæki fremur en annað heldur fremur breytt þjóðfélag breytt pólitík þar sem allt byggir á hagnaði og gróða.

Tryggingarfyrirtækin eru ekki hluti af samhjálp þau eru hluthafa fyrirtæki þar sem hagnaðurinn er aðalatriði.

Þau hafa svo sem lengi verið því marki brennd að vera gróðafyrirtæki og mismuna viðskiptavinum sínum. Upphaflega hugsunin er að fólk safni fjármunum saman svo áföllin verði viðráðanleg þeim sem fyrir þeim verða og hinir sleppi með skrekkinn.

En núna er þessi meginhugsun að meira eða minna leyti horfin í gróðahugsjónina eins og víða annars staðar eða mér liggur við að segja alls staðar.

Og það er gott að fólk - við öll stöldrum við og hugsum: Er þetta það sem við viljum, hvað er það sem skiptir mestu máli, hvers konar þjóðfélag viljum við.

Með bestu kveðju einn af móttakendum sögu þinnar...

3)

Hæ Steinar,

Ég þakka þér fyrir að miðla okkur af reynslu þinni sem er skelfileg um leið og ég samhryggist þér en það góða við þetta var, að það sem er dýrmætara en gull, börnin og konan og þú björguðust heilu og húfi.

Þetta er verðugt umhugsunarefni hvernig bregðast á við þegar svona óviðráðanlegt óhapp hendir mann.

Ég get sagt þér sögu af viðskiptum mínum við VÍS. Ég tryggði bílinn minn í mörg ár hjá þeim og lenti aldrei í neinu tjóni og borgaði alltaf alla upphæð á gjalddaga ár hvert. Maður hefði haldið að þarna væri góður kúnni á ferð. Ég borgaði alltaf 1. okt. ár hvert og nú datt mér í hug að biðja þá að breyta gjalddaganum í 1. des. í staðinn . Ég hringdi og bað um breyttan gjalddaga og ég ætlaði að borga á milli nóvembermánuð en mér var svarað kuldalega og sagt að það væri ekki hægt.

Ég sagði strax upp mínum tryggingum hjá þeim . Það var ekki fyrr en ég var búin að segja upp að starfsmaður hringir í mig heim og biður mig endilega að endurskoða afstöðu mína. Ég sagði honum að þeir hefðu verið ókurteysir og ekki viljað gera neitt fyrir mig án þess að skoða fyrst að það voru þeir sem græddu á mér.

Ég er guðsfegin að vera komin úr þessu tryggingafélagi. og ég óska þér og þínum til hamingju að vera á leiðinni út eða komin frá þeim. Þeir gera ekkert fyrir okkur . Þökk sé Drottni fyrir þá verndarhendi sem hann hélt um ykkur.! Ég óska ykkurgæfu og gengis í framtíðinni og býð ykkur Gleðilegra jóla. Kveðja ...

4)

Sæll Steinar Já þessi saga snertir svo sannarlega við manni. Þettaer hræðilegt sem fólkið hefur þurft að ganga í gegnum.Eftir lestur þessa bréfs þá ætla ég að fara að kaupamér slökkvitæki, er bara með reykskynjara á heimilinumínu. Eins finnst mér þetta svakalegt meðtryggingafélagið og kem þessu áleiðis.....

5)

Sæll Steinar ég skil vel þína afstöðu til Vís. fyrir mörgum árum kviknaði í eldhúsinu hjá mér ég gat sjálf hlaupið út með brauðristina. Það logaði í smjörlíkisbréfi sem hafði feststvið brauðið . ég bauðst til að mála eldhúsið sjálf og það kom maður og kannaði skemmdir. Því miður bauðst ég sjálf til að laga, en tryggingarfélagið nýtti sér það og borgaði bara málninguna. Gluggatjöldin í stofunni þurftu í hreinsun, ég varð aðborga það. svona eru tryggingarfélög. mín reynsla er mjög slæm af tryggingarfélögum bæði í sambandi við bíla og annað. Athugaðu lögfræðiálit. Í Guðs bænum reyndu aðjafna þig á þessu öllu. Reynið að fara í ferðalag út að dansa Hlusta á tónlist og umfram allt elskið hvort annað. Gleðiríka framtíð og blessunaróskir. (Ein bráðum áttatíu ára. )

6)

Sæll Steinar, takk fyrir að deila þessu með mér, ég varð ekki fyrir ónæði af þessarifrásögn þinni, heldur hefur hún valdið mér heilabrotum um hvað maður er varnarlaus. Ég skil reiði þína, ég hefði örugglega orðið það líka. Að lokum óska ég þér ogfjölskyldu þinni Gleðilegra jóla. kveðja ...


7)

Sæll Steinar.Þetta er mjög áhugaverð saga og bara gott mál að fá hana senda.Vekur mann til umhugsunar. Gangi ykkur sem allra best með þessi mál. Kveðja,...

8)

Þetta er ekki falleg saga um Vís. Ég vinn hjá stóru fyrir tæki og mun áframsendaþennan póst á póstlistann hjá okkur. Gangi þér vel og vonandi sér tryggingafélagiðað sér. Ég sjálf tryggi hjá Sjóvá og hafa þeir bætt mér vel öll tjón sem ég heflent í. Gott er að fá tilboð frá sem flestum tryggingarfélögum. Enn og aftur gangi ykkur vel og gleðileg jól.

...

9)

Þakka þér fyrir bréfið. Ég hef þegar forðað mér frá VÍS eftir að hafa átt íbaráttu um langan tíma með að fá tryggingabætur eftir slys. Eftir slysið hefég þurft að ganga í gegnum margar aðgerðir á baki og hef verið frá frávinnu af þeim sökum sl. 2. ár. En samt kostaði það heilmikla baráttu aðleyta réttar sins. Takk fyrir góðar ábendingar hvað varðar brunavarnir.

...

10)

Sæll, takk kærlega fyrir að segja þína sögu. Alltaf gott að heyra að svona sögur hafieinnig farsælan endi.. þá meina ég að þú og fjölskyldan þín komust lífs af. En ég tryggi ekki hjá VÍS og mun sennilega aldrei gera það.

11)

Sæll Steinar, ég er ein af þeim sem þu sendir söguna þína, þakka þér fyrir að vekjaathygli á þessu og ég mun koma henni áleiðis. Mér finnst hún fróðleg, en velti fyrirmér: eru hin tryggingafélögin betri, getum við eitthvað frekar treyst þeim. Tek þaðfram að ég tryggi ekki hjá VÍS! Gangi ykkur vel og gleðileg jól

12)

Takk fyrir magnaða lífsreynslusögu.
...

13)
Sæll Steinar. Þetta er svakaleg saga. Takk fyrir að deila henni. Vona það verði til að breyta fjármálahlið dæmisins þó ég sé ekki í stöðu til að hafa áhrif þar á. Leyfði mér reyndar að áframsenda þetta á einn sem ég þekki og er tryggingamatsmaður hjá Sjóvá. Gangi ykkur vel. Með bestu kveðju, ...

14)
Þetta er skelfileg sorgarsaga, þið eigið alla mína samúð. 'Eg verð að segjaað ég hef ekki neina áætlun ef það skildi kvikna í hjá mér, en eftir þettabréf mun ég gera það. 'Eg þakka þér fyrir ábendinguna. Mikið svakalega getaþessi tryggingarfélög verið ómerkileg.Bestu jólakveðjur...

15)

Sæll Steinar þar sem ég var í þinum sporum fyrir rúmum 7árum finnst mér ég verða að senda þér línu, ég slapp að vísu sjálf út með tvær dætur mina sjálf þær vour 1ár og 2ára en það skemmdist alveg húsið en ég var svo heppinn að vera tryggð hjá TM og þeir eru alveg frábærir ég fékk allt bætt og gat keypt mér annað hús fyrir bæturnar sem ég fékk. Þannig að ég get alveg svikalaust mælt með þeim.

Með bestu kveðjum og von um að allt gangi sem best hjá ykkur...

16)

Vildi bara senda stutt þakkarbréf og láta vita að sagan ykkar er komin til Kaupmannahafnar. Við erum lítil fjölskylda og búum í litlu fjölbýli, eins og ég vil kalla það "litlum pappakassa". Höfum lengi talað um að núna verðum við að fara ganga frá öllu í samb. við öryggi á heimilinu ef til bruna kemur. Þetta bréf varð alvarlega til þess að í dag förum við og fjárfestum í öllu sem þarf. Sjáiði hvað maður er einfaldur eitthvað, maður þarf virkilega spark í rassin til að eitthvað sé gert.

Kærar kveðjur og með von um góð jól og bjarta framtíð.
hilsen...

A.T.H.

Það sem þú lest hér að ofan er aðeins lítill hluti þeirra svara sem ég hef fengið við bréfi mínu en öll hafa þau verið í þessa áttina, ég þakka ykkur öllum sem hafa svarað mér þvi það er milkill styrkur í að heyra frá ykkur.

Meira um Tryggingar

Hér koma nokkur komment á bréfið sem ég sendi út varðandi sögu okkar og upplifun af eldsvoðanum sem við lentum í.

Bréfið: ( með smá viðbótum )

Hæ, Steinar Sörensson hér ég varð að senda þér þessa litlu sögu, hún er sönn og hún getur eflaust hjálpað einhverjum að taka réttar ákvarðanir.

Aðfaranótt 20. júlí síðastliðinn lenti 4. manna fjölskylda í þvi að eldur kviknaði í húsinu hjá þeim, Um var að ræða 3 hæða hús þar sem þau voru á efstu hæðinni og fyrir neðan voru feðgar, sonurnn á neðri hæðinni sofnar út frá kerti en vaknar við það að honum er farið að hitna óþægilega um fæturnar. Hann hleypur fram í eldhús og reynir að slökkva eldinn með vatni og í þvi fer reykskynjari í gang og vekur föður hans sem brá óneitanlega þar sem íbúðin var að fyllast af eldi og reyk, þeir náðu að hringja í 112 , sjá að þeir muni ekki ráða við eldinn og forða sér út.

Íbúðin á miðhæðinni og á efstu hæðinni þar sem 4. manna fjölskyldan er hafa sama inngang í húsið, faðirinn á miðhæðinni vissi af fjölskyldunni sofandi uppi og sparkaði og barði eins og hann gat í hurðina sem lokaði íbúðina frá ganginum til þess að reyna að vekja fólkið þar, það tókst honum og þegar hann vissi að fjölskyldan var vöknuð flýði hann út undan reyknum og eldinum.

Faðirinn á efstu hæðinni tók eldri son sinn sem var 3 og hálfs árs í fangið og móðirin tók þann yngri sem var hálfs árs, það eru nákvæmlega upp á dag 3 ár á milli bræðranna, þau hlupu af stað og ætluðu að koma sér út en þegar í stigann kom á leiðinni út úr íbúðinni mætti þeim eldhaf og svart reykjarkóf, það var eins og fá þungt högg í andlitið, faðirinn öskraði á móðirina sem fyrir aftan hann snúum við, inní hjónaherbergi strax, og þar lokuðu þau sig inni og settu sængur fyrir þau göt á hurðinni sem reykurinn kom inn um til þess að minnka hættuna á köfnun vegna reyksins en hann veldur dauða flesta í svona aðstæðum.

Það vildi svo til að vegna stíflu í niðurfalli hafði lekið vatn ofan í rafmagnstöfluna 3 vikum áður og orðið til þess að það kviknaði í lekaliðanum, það var þó ekki meira en það að aðeins lekaliðinn eyðilagðist við það, en það atvik varð til þess að heimilisfaðirinn á efstu hæðinni hugsaði vel út í það hvað hann myndi gera ef eldur kæmu upp stigann sem er eina leiðin út úr íbúðinni fyrir utan gluggana.

Þetta augnablik sem heimilisfaðirinn gaf sér til að hugsa um þetta varð til þess að fjölskyldan brást rétt við og slapp lifandi út úr þessum eldsvoða.

Reykurinn í herberginu var þrátt fyrir sængurnar orðinn óbærilegur og að standa þarna varnarlaus með aleiguna, fjölskylduna sína, konuna og börnin og vita ekki hvort þau kæmust lifandi út var lengsta stund í ævi þessarar fjölskyldu, eftir dágóða stund kom slökkviliðsmaður upp stiga og braut gluggann á herberginu með öxi, heimilis faðirinn hafði reynt að nota ryksugu til þess að brjóta gluggann án árangurs, hann síðan hjálpaði þeim öllum út, fyrst minnsta barninu, síðan eldri stráknum, þar næst konunni og síðast fór faðirinn.

Fjölskyldan var vel tryggð að minnsta kosti taldi hún sig vera það, aðeins um 3. mánuðum áður eða 15. maí þetta ár hafði tryggingaráðgjafi hjá Vátryggingafélaginu verið hjá þeim og sett upp fyrir þau tryggingapakka sem átti að vera sá besti fyrir þeirra aðstæður. Þegar rætt var við tryggingafélagið VÍS eftir brunann var þeim gefinn kostur á því að lagfæra íbúðina sína sjálf, íbúð sem þau höfðu keypt í apríl og var þeirra fyrsta í eigu fjölskyldunnar, ákváðu þau að gera það. ( íbúðin var nýuppgerð þegar fjölskyldan keypti hana )

Tjónaskoðunarmaðurinn gaf þeim munnlega upp hvað skildi laga og var farið af stað með að laga það, íbúðin skemmdist aðallega af völdum reyks og sóts.

Fyrirmælum tjónaskoðunarmanns var fylgt í einu og öllu í viðgerðunum, og það sem aukalega var gert var sérstaklega haldið utan um, bæði kostnað og vinnustundir.

Vinna við uppbyggingu tók frá 20. júlí og lauk 10.október 1581 klst fór í verkið 2-3 menn allan tímann og af þessum stundum voru 1240 stundir sem snéru beint að tjóninu.

Ágreiningur kom upp á milli eigenda og VÍS þar sem VÍS fannst kostnaðurinn við enduruppbygginguna of hár, þrátt fyrir það að vera algjörlega eftir fyrirmælum tjónaskoðunarmanns, sem lét fjölskyldunni ekki í té skriflegar upplýsingar um tjónsmat og það hvað hann hafði metið ónýtt fyrr en 10. október daginn sem viðgerðum lauk.

Eftir situr fjölskyldan með rúmar milljóna tap og skuldir vegna þessa atburðar þrátt fyrir það að vera með bestu trygginar sem VÍS á að hafa boðið þeim uppá, Brunabótatryggingin ásamt viðbótartrygginu sem þau hafa hjá VÍS tryggir þau fyrir rúmlega 11.5 milljónir, tjónskostnaður var metinn af Tæknifræðingi á 6.3 milljónir miðað við þær forsendur sem VÍS gaf fjölskyldunni.

Tryggingafélagið greiddi 2.173.423 kr mismunurinn rúmar 4 milljónir.

Hvernig veit ég þessa sögu, einfaldlega vegna þess að ég er fjölskyldufaðirinn á 3 hæðinni sem stóð í reykjarkófi með börnin mín og unnustu og var viss um að nú væri okkar síðast stund að renna upp.

Hefur þetta atvik og þessi lúalegu vinnubrögð tryggingafélagsins haft áhrif á fjölskylduna, já svo sannarlega, það góða er að ég hef gert mér grein fyrir þvi hvað er mikilvægast í mínu lífi, það slæma er að hef ég misst svo mikla stjórn á skapi mínu að ég hef hvort tveggja kallað trygginga menninga sem ég hef átt samskipti við illum nöfnum >sem ég vil ekki endurtaka, og einnig orðið það verulega reiður að ég hef lagt hendur á einn þeirra.

Kæri lesandi mig langar bara að lokum að byðja þig afsökunar á þvi að ég skuli senda þér þetta bréf óumbeðið, en ég varð að koma sögu minni á framfæri, mundu bara að hafa plan um það hvernig þú ætlar að bregðast við ef það kviknaði í hjá þér, já ég veit, ég hélt líka að það myndi ekki gerast hjá mér en það að hafa gert áætlun getur einfaldlega skilið á milli lífs og dauða, jólin eru framundan, meira um kerti og rafmagn en venjulega.

Ég mæli með þvi að þú eigir slökkvitæki og brunateppi, og hafir reykskynjara í öllum herbergjum. Hamar eða öxi til að brjóta gler ef þarf gæti verið gott að hafa í náttborðinu ( passaðu þig bara á að gera það ekki fyrr en þú hefur hulið þær rifur sem reykurinn kemst inn um þvi eldurinn leitar í súrefnið og getur magnast ef súrefnis flæði eykst ), hafðu líka breitt límband í náttborðinu til þess að líma yfir rifur til að minnka reykinn ef eldur kemur upp og hluti af áætlun þinni felst í því að forða þér inn í eitthvað ákveðið herbergi.. Ef þú hefur svalir eða fleiri en eina útgönguleið byggðu áætlunina í kringum það.

Að lokum, ef þú tryggir hjá VÍS forðaðu þér, Ef þú þekkir einhvern sem tryggir hjá VÍS bjargaðu honum, farðu með hann eitthvað annað.

Það líður ekki sá dagur að ég hugsa ekki um þetta atvik og það hve illa VÍS er að koma fram við okkur, eftir að við fluttum aftur inn hef ég átt erfitt með svefn, ef ég finn einhverja lykt sem ég þekki ekki fyllist ég ótta yfir þvi að eitthvað hræðilegt gæti nú verið að gerast.

Steinar Immanúel Sörensson
Suðurgötu 27
230 Keflavík
Sími 697 5441
sis31@hi.is

Tryggingar

Undanfarna mánuði hef ég mátt berjast við Vátryggingafélag Íslands vegna tjóns sem fjölskyldan mín varð fyrir í júlí síðastliðinn, þegar eldur varð laus í íbúðinni fyrir neðan okkur og skemmdir urðu á okkar íbúð vegna sóts og reyks auk þess sem þessa nótt ég, konan og börnin mín vorum í bráðri lífshættu vegna innilokunar í reykjarkófi, þar sem þeir eru ekki tilbúnir að borga það sem þeim að mínu mati ber að borga.

Vátryggingafélagið gerir lítið úr þessu atviki en mér er allt annað en hlátur í huga og finnst mér helst mega líkja vinnubrögðum þeirra við vinnubrögð Hitlers og nasista í seinni heimstyrjöldinni eða einræðis tilburði Saddams Hussein.

Ekki alls fyrir löngu sendi ég bréf á einhver nokkur þúsund netföng og urðu viðbrögðin við þvi hreint ótrúleg, og í flestum tilfellum mér hvatning í að leggja til þessa risa með þau vopn sem ég kann að búa yfir.

Mér er spurn hvort þessi mafía sem stjórnar VÍS geri sér fyllilega grein fyrir þvi að þeir eru að fást við líf fólks eða er þeim kannski bara sama eins og þeim kumpánum Hitler, Saddam og jafnvel Osama Bin Laden.

Það þarf sterkar hreðjar til að glíma við djöfulinn og í dag finnst mér eins og Vátryggingafélagið VÍS sé beint handbendli hans.

Þeir aðilar sem ég hef þurft að kljást við þarna eru flestir vondir menn, illvirkjar og lýðskrumarar sem hika ekki við að beita andlegu ofbeldi til að ná sínu fram og arga síðan úlfur úlfur þegar maður missir þolinmæðina.

Thursday, January 4, 2007

welcome / velkomin

English / This is my first post here, so I would like to welcome you to my website, the time now is almost 5:30 am and I have not yet gone to sleep so it´s about time for me to go to my bed, will post something interesting when i wake up...

Icelandic / þetta er fyrsta skipti sem ég set inn á síðuna hér og vil eg bjóða þig velkomin þar sem klukkan er orðin hálf sex að morgni og ég ekki einn farinn að sofa hafði ég hugsað mér að fara í háttinn núna og setja eitthvað meira hérna þegar ég fer á fætur...